Áramótin voru haldin hjá Jonna og Allý. Drengurinn var auðv yfir sig spenntu yfir sprengjunum og spurði ? 10 mín fresti hvenær færi að dimma því að pabbi hans var búinn að segja honum að þá gætu þeir farið út að sprengja. Þeir sprengdu aðeins fyrir matinn en svo var borðað og farið aftur út að klára pakkann.
Þau voru ekkert smá æðisleg bæði tvö. SM var ekkert hrædd við sprengjurnar og sagði bara meira meira og hélt á stjörnuljósi eins og ekkert væri. Við vorum örugglega hátt í klst að sprengja og hún labbaði bara þarna fram og til baka með stjörnuljós í hendi og skemmti sér konunglega. Drengurinn var ekkert smá spenntur fyrir sprengjunum. Hann fékk að sprengja helling og hélt á blysunum. Þegar við vorum að fara inn sáum við brennu sem virtist vera í Setberginu og skutluðumst inn í bíl og keyrðum að brennunni.
Svo var farið inn og horft á skaupið. Þau sátu bæði og horfðu. SM klappaði og sagði vei og hendurnar fóru upp í loft þegar sýnt var frá búsáhaldabyltingunni og þau bæði í lokalaginu hjá Palla. Allir mjög ánægðir með skaupið. Það var alveg yndislegt veður og alveg blanka logn þannig að eftir smá tíma sá maður varla niður í bæ og mengunin var alveg rosaleg, enda mikið sprengt. Við héldum svo heim á leið rétt eftir kl 01. Komum aðeins við á Krosseyrarveginum því að Ýmir vildi endilega rifja upp gamla tíma :-). Vorum svo sofnum um 02.